Sjálfbærni er óaðskiljanlegur hluti NorDan-hópsins
Sjálfbærni er óaðskiljanlegur hluti NorDan-hópsins. Í orðunum „Perfekt samspill“ liggur sjálfbærni sem rauður þráður í gegnum vörurnar sem við framleiðum, hvernig við vinnum og þá ábyrgð sem við berum.
Umhverfissjónarmið hafa um marga áratugi verið eðlilegur hluti af starfsemi NorDan-hópsins. Með samstæðustefnunni „ecoDigital ready“ setjum við umbótastarf sem tengist umhverfi og stafrænum umbreytingum í samhengi við sjálfbæra þróun. Þannig þróum við bestu lausnirnar með hentugustu verkfærunum.
NorDan-hópurinn hefur skilgreint fjögur skýr áherslusvið í sjálfbærnivinnu okkar: staðbundna verðmætasköpun, áherslu á manneskjuna, auðlindanýtni og innleiðingu og samstarf. Áherslusviðin byggja á gildum okkar og styðja við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun.