Við hjá NorDan Ísland leggjum mikið uppúr góðri þjónustu við viðskiptavini okkar.

Ef þig vantar þjónustu vegna okkar glugga þá er gott að hafa nokkur atriði í huga

Þjónusta við viðskiptavini

Starfsmenn okkar eru ávalt reiðubúnir til að aðstoða og veita ráðgjöf. Hafðu samband við okkur í síma 571 0910 eða sendu okkur tölvupóst á sala (hjá) nordanisland.is.

Áður en þú hefur samband við okkur varðandi gluggana þína er gott að hafa við höndina framleiðslunúmer.

Hvað felst í 5 ára ábyrgð ?

Ábyrgðin nær yfir framleiðslu- og hráefnisgalla sem fram kemur innan 5 ára frá afhendingartíma. Ábyrgðin tekur ekki yfir skaða sem orsakast vegna rangrar ísetningar, slæmrar eða lítillar umhirðu , eða flutning á gluggum frá lager sem er á ábyrgð verkkaupa.

Ísetning glugganna er á ábyrgð þeirra verktaka sem sjá um ísetninguna. NorDan tekur í engum tilfellum ábyrgð á handvömm við ísetningar. NorDan leggur mikla áherslu á að vandað sé til verka við ísetningu og einungis löggiltir iðnaðarmenn sjái um hana.

Notkunarleiðbeiningar

Umhirða gluggana skiptir máli. Smur og þrif er gott að framkvæma árlega til að viðhalda búnaði.

Það er er æskilegt að þrífa álramma nokkrum sinnum á ári. Góð regla er að gera það að vana að þrífa álramma þegar gluggarnir eru þrifnir. Rákir frá glerlista geta kallað á auka nudd ef þær eru ekki þrifnar fljótlega af. Ef útfelling frá steypu í nýbyggingu sest á rúðuna eða á álramma, þarf að þvo/hreinsa það af sem fyrst, annars gætu rammar og gler orðið matt.